Valmynd
Umsókn í Rudda
Forsíða
Spjallborð
Atburðir
Fjölmiðlar
Myndbönd
Kappakstursbrautir
Afþreying
Undirskriftalisti
Lög og reglur
Fróðleikur
Tenglar
Sektareiknir
Dynoniðurstöður.
Þjónustubækur
Myndir
Olía.
Að lesa á olíubrúsa getur verið höfuðverkur út af fyrir sig.
þú skilur lítið eða ekkert í tæknibulli sem mælt er með fyrir hjólið þitt, né af hverju það er ekki sama hvaða olía er notuð..
Er þetta ekki allt það sama hugsa sumir?

Nei, og sem meira er, að nota ranga olíu getur stytt endingu hjólsinns um allt að helming.
Framleiðendur eru ekki alltaf hvað hjálplegastir.
Það myndi hjálpa mikið ef þeir t.d. segðu: "við höfum gert prófanir á öllum tegundum og best fyrir hjólið er Kendall 20W/50SE" til dæmis.

Það sem framleiðendur segja þér er hvaða þykkleika hjólið þarf, t.d Honda mælir með 20W/50 fyrir 1960 módelið af skellinöðrum sínum.
20W/50 segir þér hve þykk eða "þung" olían er.
T.d er olivíuolía mun "léttari" en  mótorolía, eða um 2 - 3W.

En "/50" eru efra þol olíunarinnar sem segir þér að þegar olían er hituð í efri mörk vinnsluhita olíunarinnar er smurgildi hennar eins og olía sem er 50W. Olía fyrir hjól eru á bilinu 10W til 70W.

"SE" fyrir aftan tölustafina er viðurkenningarstaðall frá American Petroleum Institute (API) og þýðir að, ef prófuð, þá hefur olían náð ákveðnum stöðlum.
Þessir staðlar eru fjölmargir og er original staðalinn SA, svo næstur er SB, SC og svo framvegis..

Nú í dag er t.d komið upp í SJ stöðul, og er það bestu gæði..
Því hærra í stafrófinu sem aftari stafurinn er, því betri.
Ef þú átt gamalt hjól sem framleiðandi mælir t.d með 10W/40SF, þýðir það þó ekki að þú þurfir að kaupa hana en ekki olíu sem framleidd hefur verið í seinni tíð og hefur hærri gæðastaðal.
Þetta hins vegar gefur þér hugmynd um hvaða lágmark þú ættir að setja þér.





Deila á Facebook

Heyrst hefur
 
Punky Design
 
auglysingar.is
 
Netverslanir eshop
 
Road Race deild AÍH
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com -