|
1. Hvað skal hafa í huga við akstur bifhjóla.
1. Meta aðstæður.
Að meta aðstæður, er eiginleiki til að meta fjarlægðir og hraða, skilja umhverfið, og staðsetja þig rétt á veginum. Á bifhjóli, getur staðsetning verið munurinn á því að taka eftir yfirvofandi hættum í umhverfinu eða verða þeim að bráð. Best er að aka vinstra megin á akreinini, sem næst miðlínu. s.s. í vinstra hjólfari.
Þetta gefur þér svigrúm til hægri, og þú losnar við oliusmit sem getur myndast í miðju akreinarinnar.Þú hefur einnig betri yfirsýn yfir veginn og það sem framundan er.Þegar ekið er á eftir bíl, vertu viss um að ökumaður bílsins sjái þig,
Ekki vera í blinda punktinum við hann!! Notaðu fimm sek. regluna, þú átt að geta talið upp að fimm áður en þú ferð frammhjá sömu punktum og hann. Bættu við tveimur sek. þegar blautt er! (Gott er að miða við ljósastaura.) Vertu sýnilegur, og yfirvegaður..
Ef þú keyrir nærri vegöxlinni, getur verið hætta á að bílar þröngvi sér frammúr,
sér í lagi ef þú ekur varlega, eins og þegar um óvana eða lærlinga er að ræða.
Lærðu að vera einbeittur!! Fylgstu með öðrum í umferðinni.. t.d. ökumaður sem kemur akandi eftir hliðargötunni, lítur á þig og keyrir svo í veg fyrir þig.. (það getur einfaldlega verið vanmat að hans hálfu, vegna þess að þú og hjólið virðist fjær en maðurinn reiknaði með). (sjá nánar í 2. kafla)
2. Nauðsynlegur búnaður.
Hjálmur... Lög eru fyrir notkun hjálms í umferðinni hér á landi, svo þú verður að vera með hjálm! Hjámur skal vera af réttri stærð, uppl. um rétta stærð færðu hjá sölumönnum. Mismunandi höfuðlag getur einnig verið stórt atriði.. prófaðu nokkra hjálma áður en þú kaupir. Hjálmurinn á að vera það þröngur að þú nánast bítur í kinnarnar á þér, hann aðlagar sig svo eftir höfuðlagi þínu.
Of stór hjálmur gerir EKKERT gagn!!
Hanskar og stígvél.. Hvað sem þú gerir , ekki keyra í stigaskóm, sandölum eða berfættur. Keyptu leðurstígvél sem gefa góðan stuðning við ökkla, og
og leðurhanska.Galdurinn er að kaupa ekki of þrönga, þeir eiga að vera örlítið lengri en fingurnir á þér. Því þegar þú ert á hjólinu og gefur inn, kemstu að því að smátt og smátt meiða þeir fingurgómana.
Leðurjakkinn.. er sem og hitt, nauðsynlegur, og hann er einnig merki um það að þú sért ekta "hjólari". Nú orðið er einnig hægt að fá jakka og buxur úr gerfiefnum sem veita mjög góða vörn við veðri og veginum ef slys ber að höndum.. en hver getur neitað þeirri ímynd sem leðrið hefur, jafnvel hinir mestu sakleysingjar verða vígalegir í leðrinu.
Leðubuxur.. eru nauðsynlegar því oftar en ekki er menn falla í götuna koma þeir niður á fæturnar,á 60-70kmh.eru gallabuxurnar fljótar að hverfa af löppunum á þér..
ALLUR þessi búnaður ætti að vera skilda samkvæmt lögum, en við teystum þér lesandi góður að sýna ábyrgð og meta aðstæður rétt!
3. Tilbúinn í slaginn.
Okey.. þú ert í flottum galla, fyrir framan þig er væntanlega ekki mjög nýtt hjól? (en gott er að byrja á einhverju sem má fara á hliðina án þess að veröldin "hrynji".)
Líttu yfir hjólið.. eru dekk í lagi, er keðjan strekkt, eða er eitthvað hangandi eða lekandi úr hjólinu?? Þú ættir að lesa eigendahandbókina til að vita hvað hafa skal í huga áður en lagt er af stað!Ath. bensín, olíu og ljós..sestu á hjólið, taktu standarann af og settu í gang.Gott er að hafa hjólið í gír þegar það er ekki í notkun, svo vertu viss um að það sé í hlutlausum þegar þú startar.. Komdu þér upp kerfi þegar þú setur í gang, standara af, kúpla, hlutlausan gír, vél í gang.
leyfðu hjólinu að hitna, ath. festingar fyrir hjálm og stilltu spegla.
Stjórntæki bifhjóls eru fimm..
-bensíngjöf er hægra handfang.. frambremsa er handfang hægra megin á stýri..
-Kúpling er vinstra megin á stýri.. Afturbremsu er stýrt með hægri löpp
og gírarnir af þeirri vinstri. (reynið aldrei að standa á fótbremsu og setja í gír á sama tíma!)
4. Af stað
Það er eitt sem þú verður að temja þér og það er að horfa í kringum þig og hreyfa höfuðið til þess.. hvort sem er til hliðanna eða aftur fyrir þig.
Bifhjól hafa stóran blindan punkt og það getur verið lífsspursmál að venja sig þetta.Hjólið er í gangi í hlutlausum, taktu í kúplinguna með vinstri hendi smelltu gírstönginni í fyrsta..(s.s. einn niður.) Því næst sleppirðu kúplingunni rólega og snýrð bensíngjöfinni rólega að þér..rétt nóg til að hjólið hiksti ekki, eða drepi á sér.
Um leið og gírinn tekur, mun snúningur vélarinnar falla, svo þú eykur örlítið við eldsneytið.Nú ættirðu að vera komin af stað, ef þú hefur ekki drepið á?
Taktu í kuplingunna , sláðu af bensíngjöf, taktu í frambremsu og stoppaðu.
Æfðu þetta nokkrum sinnum. Mundu að halda í kúplinguna þegar þú ert stopp.
Til að byrja með er gott að halda um bensíntankinn með hnjánum og hafa efri hluta líkamans afslappaðann, einfaldlega til að fylgja hjólinu vel eftir.
Þegar þú treystir þér til geturðu smátt og smátt aukið ferðina og notað fleiri gíra.
Hafðu höfuðið upprétt, varastu umhverfið, og líttu ekki á hendurnar á þér til að sjá hvað þær eru að gera.. það gæti einungis ruglað samhæfinguna.
Þegar þú hægir á þér, "skjóttu" eldsneyti inn, snöggt og stutt, jafnt og þú kúplar frá og gírar niður, þetta hjálpar vél og gírkassa að ná sama snúning.. og þetta hljómar vel líka!Þegar þú bremsar.. veittu þá meiri þrýsting inn á frambremsuna en aftur.. ca. 65/35.Afurbremsan er í raun aðallega til að gera hjólið stöðugra, og halda við, eða aðstoða aðalbremsuna sem er frambremsan. Í bleytu þarftu að samhæfa þær enn frekar.. ca.55/45.
5. Beygjur..
Beygjur eru eitt það skemmtilegasta sem þú gerir á bifhjóli.
Profaðu og þú sérð hvað ég meina. Þegar komið er að beygju, vertu viss um að þú sért í réttum gír til að gefa inn þegar þú ert að rétta þig af út úr beygjunni. Hægðu á þér, horfðu gegnum beygjuna og miðaðu út miðpunkt beygjunar. (þetta ferli er fljótt að festast í undirmeðvitund.) Ekki vera hræddur við að halla þér í beygjuna, fylgdu hjólinu, hafðu þó höfuðið í lóðréttri stöðu, (s.s. beint.)
Og reyndu ekki að streitast á móti hallanum t.d. með að setjast upp í miðri beygju, nema kannski til að breyta um stefnu. annars er það mjög slæm ákvörðun!
snúðu kinn og innri öxl (sú öxl sem snýr inní beygjuna) í þá stefnu sem þú ætlar að fara og slakaðu á í handleggjum, láttu olnbogana vísa í átt að malbikinu.
Staðsettu þig þannig að þú farir ekki of vítt, eða of innarlega í beygjuna.
Eindregið er mælt með, að þú leggir upp úr því að læra beygjutækni,
annað hvort gegnum bifhjólaskóla, eða jafnvel gegnum video eða internetið.
Að taka beygjur er hálfgerð list,mikilvægt er að taka ekki upp slæma siði,
eins og að líta niður í götuna(algeng mistök).
Reglan að beygja hjóli í gegnum beygju er kallað andstýring.
Það þýðir að þegar þú ert að beygja til hægri,snýrðu stýrinu eilítið til vinstri og öfugt. Hjómar furðulega,en er mjög mikilvægt að gera rétt.
Er þú kemur út úr beygjunni er gott að auka við bensíngjöfina til að rétta hjólið upp aftur. Að láta hjólið "slæda" er eitthvað sem lærist af mikið reyndum mönnum.
En mikilvægt er að vera yfirvegaður og einbeittur, ef hjólið rennur, haltu stöðugri inngjöf og stefnu, mundu að andstýra. (BANNAÐ er að bremsa við þær aðstæður).
6. Bremsur...
Það eru nokkrar grundvallarreglur við að bremsa. Sú fyrsta, eins og lýst er að ofan er aðallega bremsað með frambremsu.
Önnur er að nota bara afturbremsu þegar þú ert á mjög lítilli ferð t.d gönguhraða.
Ef þú notar frambremsuna þegar framhjólið er ekki beint geturðu misst það á hliðina. Að detta á lítilli ferð getur verið MJÖG neyðarlegt.
Að bremsa í beygju kallar á mikla nákvæmni, of mikil bremsun að framan og þú missir framendan niður.. of mikið að aftan og þú snýrð afturendanum undan þér.
Rétt notkun á bremsum í beygjum getur verið mjög mikilvæg, notirðu frambremsuna reisirðu hjólið, ef þú notar aftubremsuna rétt leggurðu það meira, sumir ökumenn nota þetta mikið í kröppum og hröðum beygjum. ( en mjög varlega þó). Ef þú læsir öðru hvoru hjólinu vegna of mikillar bremsunar, losarðu einfaldlega á bremsunni aftur. Æfðu þig á að stoppa snöggt, farðu á afvikin stað, settu eitthvað í vegkantinn til viðmiðunar hvar hefja skal bremsuferlið og farðu nokkrar ferðir og mældu árangurinn. Ath. hvort þú getir ekki stytt vegalengdina sem þú þarft.
7. Að forðast hætturnar...
Ef allt í einu blasir við hætta á veginum, beint fyrir framan þig, þarftu að geta forðast það. Ef þú getur, andstýrirðu hjólinu framhjá hættunni, og síðan aftur í þína línu.Þetta kallar sennilega á útskýringu,
þú einfaldlega hreyfir stýrið í eina átt til að fara framhjá, síðan í hina áttina til að fara til baka,rétt eins og að taka snarpa "S" beygju. Þú þarft að nota allan líkamann til að gera þetta, fæturna, búkinn og hendur.
Og auðvitað, ef ekki er hægt að fara kringum það er eina leiðin kannski yfir það, jafnvel að gefa í til að létta á framenda hjólsins og fara beint yfir.
Hafðu ávallt í huga að aka eftir aðstæðum og getu !
Höfundur. Karl Bragason
|