Reglugerð um skoðun ökutækja, 378/1998
Lögreglan kveður ökutæki til skoðunar.
15. gr.
Þegar lögreglan kveður ökutæki, sem vanrækt hefur verið að færa til almennrar skoðunar skv. 8. gr. eða til endurskoðunar skv. 2, mgr. 11. gr., til skoðunar, skal það gert með því að líma sérstakan boðunarmiða yfir skoðunarmiða ökutækisins.
Sama er ef öryggis- eða mengunarvarnarbúnaði ökutækis er að mati lögreglunnar áfátt, þótt almenn skoðun þess sé í gildi.
Á boðunarmiðanum skal vera merki lögreglunnar og á honum skal kveðið á um þann frest sem gefinn er til að færa ökutækið til skoðunar, að hámrki sjö dagar. Lögreglan skal tilkynna skráningarstofu samdægurs um kvaðninguna. Boðunarmiðar skulu gerðir samkvæmt fyrirmælum Ríkislögreglustjórans.
***
Athugið, þarna er ég að setja þessi lög inn vegna þeirra ofsókna sem lögreglan stóð fyrir síðasta sumar (2006) þegar var verið að boða bifhjól til endurskoðunar vegna þess að númeraplata var annaðhvort ógreinileg eða á vitlausum stað skv. mati lögreglumanna.
Lögreglan hefur EKKI heimild til að boða ökutæki til endurskoðunar á forsendum þess að númeraplata sé ógreinileg eða á vitlausum stað skv. reglugerð þessari að ofan.
Númeraplata er EKKI öryggisbúnaður né mengunarvarnarbúnaður.
Númersljós er EKKI öryggisbúnaður né mengungarvarnarbúnaður.
Ég hef haft samband við Frumherja og þeir tjáðu mér að í þeirra bókum sem þeir fara eftir eru þessir 2 hlutir, þ.e. platan og ljósið ekki flokkað sem öryggisbúnaður né mengunarvarnarbúnaður.
Ég hef einnig haft samband við lögmann lögreglunnar og benti honum á þetta en hann neitaði að tjá sig um málið. Engu að síður bað ég hann um að koma þessum upplýsingum á framfæri við starfsmenn lögreglunnar.
Hinsvegar má benda lesendum á að lögreglan HEFUR leyfi til sekta vegna skorts á númersljósi, ógreinilegrar númeraplötu og ef númeraplata er á ósamþykktum stað.
Sekt vegna ógreinilegrar númeraplötu: kr. 10.000,-
Sekt vegna skorts á númersljósi: kr. 10.000,-