
Silverstone í Englandi var upphaflega byggð 1943 sem flugvöllur nálægt litlum bæ sem einnig ber nafnið Silverstone.
Royal Automotive Club hafði samband við breska flugherinn 1948 og bað um að fá að nota flugvöllinn sem kappakstursbraut, og fékkst það leyfi.
Á þeim tíma var svæðið orðið að jarðræktarsvæði og var strax hafist handa við að búa til braut.
Þann 2 október 1948 var haldin fyrsta kappaskturkeppnin á Silverstone, en það var RAC Grand Prix.
Í dag er Silverstone gríðarlega vinsæl braut, elskuð af mörgum og hötuð af sumum..
Á Silverstone er hægt að komast á hin ýmsu námskeið, s.s. Drift, Performance Driving, One Day ARS ofl ofl.
Einnig er hægt að leigja brautina, leigja bíla s.s. Ferrari, og svo eru einnig track dagar.
Það eru ekki oft mótorhjóladagar, en þegar þeir eru þá er kostnaður á dag ca 25þ krónur.