Valmynd
Umsókn í Rudda
Forsíða
Spjallborð
Atburðir
Fjölmiðlar
Myndbönd
Kappakstursbrautir
Afþreying
Undirskriftalisti
Lög og reglur
Fróðleikur
Tenglar
Sektareiknir
Dynoniðurstöður.
Þjónustubækur
Myndir
Innlent | mbl.is | 11.6.2007 | 06:34
Ökumaður bifhjóls hálsbrotnaði er hann ók aftan á bifreið í nótt
 
Ökumaður bifhjóls er alvarlega slasaður eftir að hann ók aftan á bifreið á Breiholtsbraut í nótt. Að sögn læknis á slysadeild Landspítalans hlaut maðurinn hálsbrot. Gerð var á honum aðgerð strax í nótt. Slysið varð á móts við hesthúsin í Víðidal, en samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í nótt féll hjólið í götuna er því var ekið á bílinn. Annar bifhjólamaður sem var með í för datt einnig. Ökumenn bifhjólanna höfðu ekki sinnt stöðvunarmerkjum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við Rauðavatn skömmu áður. Lögreglan á Selfossi hafði haft samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu skömmu eftir miðnætti og tilkynnt að tvö bifhjól hefðu mælst á 178 km hraða á Hellisheiði. Eins og áður sagði reyndi lögreglan að stöðva för bifhjólamannanna við Rauðavatn, en þeir sinntu ekki stöðvunarmerkjum og héldu för sinni áfram upp Breiðholtsbrautina á ofsahraða.

Deila á Facebook

Heyrst hefur
 
Punky Design
 
auglysingar.is
 
Netverslanir eshop
 
Road Race deild AÍH
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com -