Valmynd
Umsókn í Rudda
Forsíða
Spjallborð
Atburðir
Fjölmiðlar
Myndbönd
Kappakstursbrautir
Afþreying
Undirskriftalisti
Lög og reglur
Fróðleikur
Tenglar
Sektareiknir
Dynoniðurstöður.
Þjónustubækur
Myndir
Innlent | Morgunblaðið | 7.5.2007 | 05:30
Fluttur alvarlega slasaður á slysadeild LSH
 
Karlmaður á þrítugsaldri var fluttur meðvitundarlaus á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss eftir umferðarslys í Njarðvík um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Maðurinn var enn í aðgerð rétt fyrir miðnætti í gær og því lítið hægt að segja til um líðan hans, að öðru leyti en því að sérfræðingur á gjörgæsludeild lýsti ástandi hans sem mjög alvarlegu. Slysið átti sér stað á mótum Njarðarbrautar og Tjarnarbrautar í Njarðvík, skammt innan við Fitjar. Bifreið var ekið fyrir bifhjól mannsins og nauðhemlaði hann til þess að afstýra árekstri. Við það missti maðurinn stjórn á bifhjólinu og féll afar harkalega í götuna. Bifhjólið rann jafnframt langa vegalengd. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum var maðurinn meðvitundarlaus þegar komið var að og þegar í stað fluttur á brott með sjúkrabíl. Ökumann bifreiðarinnar sakaði ekki, en ekki varð árekstur. Að sögn lögreglu er ekki vitað á þessari stundu hvort um hraðakstur var að ræða en málið verður rannsakað.

Deila á Facebook

Heyrst hefur
 
Punky Design
 
auglysingar.is
 
Netverslanir eshop
 
Road Race deild AÍH
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com -