Innlent | mbl.is | 26.5.2007 | 17:52
Tekinn á 183 km hraða á Reykjanesbrautinni
Ökumaður bifhjóls var stöðvaður á 183 km hraða á Reykjanesbrautinni á um kl. 17 í dag. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum var ökumaðurinn sviptur ökuréttindum og má hann búast við hárri fjársekt. Annar ökumaður var stöðvaður á 115 km hraða á Reykjanesbrautinni í dag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri hafa sex verið teknir fyrir hraðakstur, en sá sem hraðast ók mældist á 130 km hraða í Öxnadal. Lögreglan á Akranesi hefur haft afskipti af átta ökumönnum í dag vegna hraðaksturs.