Valmynd
Umsókn í Rudda
Forsíða
Spjallborð
Atburðir
Fjölmiðlar
Myndbönd
Kappakstursbrautir
Afþreying
Undirskriftalisti
Lög og reglur
Fróðleikur
Tenglar
Sektareiknir
Dynoniðurstöður.
Þjónustubækur
Myndir
Innlent | mbl.is | 19.6.2007 | 19:34
Lögreglan fái búnað til að stöðva hraðakstur bifhjóla
 
„Við bregðumst við af hörku gegn hraðakstri og okkar menn verða ekki lengi Postular ef þeir brjóta reglurnar. Við veitum  okkar félögum alvarlegar áminningar ef þeir brjóta reglurnar og menn virða það. Við viljum  að lögreglan hafi búnað  eins og naglabelti til að stöðva hjól sem eru á flótta undan lögreglunni og virða ekki stöðvunarmerki.” sagði Baldur Róbertsson formaður bifhjólasamtakanna Postulanna á Suðurlandi. Postularnir taka nú þátt í viðræðum við yfirvöld um aðgerðir  til að koma í veg fyrir hraðakstur bifhjólamanna. Baldur er mikill áhugamaður um ökutæki, þar á meðal fornbíla og bifhjól. Í vikunni brann viðgerða- og sprautuverkstæði sem hann og félagar hans áttu. Þar inni var torfæruhjól, árgerð 1971 sem átti að breyta  í „Lowrider hjól”.  „Þetta verður aldrei hjól,” sagði Baldur og mátaði hjólagrindina sem dregin var út úr brunarústunum.

Deila á Facebook

Heyrst hefur
 
Punky Design
 
auglysingar.is
 
Netverslanir eshop
 
Road Race deild AÍH
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com -