Innlent | Morgunblaðið | 17.7.2007 | 05:30
Banaslys á Akrafjallsvegi
Ökumaður bifhjóls, karlmaður á fertugsaldri, lést er hann lenti í árekstri við strætisvagn um kl. 19 í gærkvöldi. Slysið varð á Akrafjallsvegi við gatnamót Innnesvegar og Akrafjallsvegar. Bifhjólinu var ekið austur Akrafjallsveg og strætisvagninum í vestur með fyrirhugaða akstursstefnu suður Innnesveg, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Bifhjólið lenti framan á strætisvagninum og hafnaði ökumaður þess utan vegar. Talið er að hann hafi látist samstundis. Hinn látni var á leið til vinnu ásamt tveimur félögum sínum og missti annar þeirra stjórn á hjóli sínu við slysið og féll í götuna. Hann meiddist þó ekki. Tildrög slyssins voru ekki ljós seint í gærkvöldi en ekkert á vettvangi bendir til hraðaakstur. Loka varð Akrafjallsvegi og Innnesvegi í u.þ.b. þrjár klukkustundir og beina umferð að og frá Akranesi, norður fyrir Akrafjall á meðan.