Valmynd
Umsókn í Rudda
Forsíða
Spjallborð
Atburðir
Fjölmiðlar
Myndbönd
Kappakstursbrautir
Afþreying
Undirskriftalisti
Lög og reglur
Fróðleikur
Tenglar
Sektareiknir
Dynoniðurstöður.
Þjónustubækur
Myndir
Innlent | mbl.is | 29.7.2007 | 08:25
Banaslys á Biskupstungnabraut
 
Banaslys varð á móts við verslunina Minni-Borg í Grímsnesi á áttunda tímanum í gærkvöldi. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður bifhjóls féll af hjóli sínu í árekstri við jeppa á Biskupstungnabraut. Var hann fluttur á Slysadeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss í Fossvogi með sjúkrabifreið en var úrskurðaður látinn við komuna þangað, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Bifhjólamaðurinn ók til suðvesturs og var í samfloti með öðrum bifhjólamönnum. Bifhjólamaðurinn lenti á hægra afturhorni jeppabifreiðar sem kom á móti og var beygt í átt að versluninni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. „Lögreglan á Selfossi rannsakar þetta umferðarslys. Fulltrúi rannsóknarnefndar umferðarslysa var kallaður til. Tildrög slyssins eru ekki að fullu ljós og því er afar mikilvægt að allir þeir sem veitt geta upplýsingar um slysið og aðdraganda gefi sig fram við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010. Af þeirri ástæðu er ekki hægt að veita frekari upplýsingar um slysið," að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.

Deila á Facebook

Heyrst hefur
 
Punky Design
 
auglysingar.is
 
Netverslanir eshop
 
Road Race deild AÍH
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com -