Valmynd
Umsókn í Rudda
Forsíða
Spjallborð
Atburðir
Fjölmiðlar
Myndbönd
Kappakstursbrautir
Afþreying
Undirskriftalisti
Lög og reglur
Fróðleikur
Tenglar
Sektareiknir
Dynoniðurstöður.
Þjónustubækur
Myndir
Innlent | Morgunblaðið | 18.7.2007 | 05:30
Sniglarnir efna til hópaksturs
 
Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, efna til "keyrslu" í dag, miðvikudag. Allir eru boðnir velkomnir til þátttöku, bæði bílar og bifhjól, að því er fram kemur í frétt frá samtökunum. Tilgangur keyrslunnar er sagður að sýna fram á að bifhjól og bifreiðir eiga samleið í umferðinni og minna á að tillitssemi á milli manna er lykill að öruggri umferð. Ökumenn bifhjóla séu flestir einnig ökumenn bifreiða sem sýni það að þessir tveir hópar eiga margt sameiginlegt. "Keyrslunni er einnig ætlað að minna okkur á þá ábyrgð sem við tökumst á hendur þegar við setjumst upp á hjólið eða undir stýrið á bifreið. Við verðum að vera vel vakandi, nota öryggisbeltin og aka eftir aðstæðum," segir þar einnig. Farið verður frá planinu á Kentucky Fried Chicken í Mosfellssveit kl. 18.30 og ekið inn að Gljúfrasteini. Þar verður snúið við og ekið inn í Mosfellssveit. Í fréttinni segir í lokin að vonandi sjái sem flestir sér fært að mæta og til að minna á notkun öryggisbeltanna verði ökumenn bifreiða að sjálfsögðu með sín belti spennt en bifhjólamenn geti sýnt sinn vilja í verki með að spenna um sig hvítan borða sem liggur þvert yfir bringuna eins og bílbelti.

Deila á Facebook

Heyrst hefur
 
Punky Design
 
auglysingar.is
 
Netverslanir eshop
 
Road Race deild AÍH
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com -