Valmynd
Umsókn í Rudda
Forsíða
Spjallborð
Atburðir
Fjölmiðlar
Myndbönd
Kappakstursbrautir
Afþreying
Undirskriftalisti
Lög og reglur
Fróðleikur
Tenglar
Sektareiknir
Dynoniðurstöður.
Þjónustubækur
Myndir
Innlent | mbl.is | 13.6.2007 | 13:17
Hópur bifhjólamanna mældur á 174 km hraða
 
Þrátt fyrir mjög alvarlegt umferðarslys á dögunum virðist sem sumir bifhjólamenn láti sér ekkert að kenningu verða. Í gærkvöld var hópur bifhjólamanna staðinn að ofsaakstri á Þingvallavegi en þeir óku á 174 km hraða. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru mennirnir á austurleið en lögreglan hugðist stöðva þá við afleggjarann að Skálafelli og kom sér þar fyrir með blikkandi ljós. Tæplega helmingur hópsins, sem taldi um tíu bifhjólamenn, ók framhjá lögreglumönnunum og hafði stöðvunarmerki þeirra að engu en hinn hluti hópsins sneri við og hélt í áttina að höfuðborginni. Ekki kom til eftirfarar en unnið er að rannsókn málsins og ekki er útilokað að þessir ökufantar náist, að sögn lögreglu. „Það er kaldhæðnislegt en jafnframt átakanlegt til þess að hugsa að á þessum hluta Þingvallavegar varð banaslys fyrir nokkrum árum þegar bifhjólamaður lét lífið. Kross í minningu hans er staðsettur nærri afleggjaranum að Skálafelli en þar fóru ökufantarnir einmitt um í gærkvöld eins og fyrr var getið," að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Deila á Facebook

Heyrst hefur
 
Punky Design
 
auglysingar.is
 
Netverslanir eshop
 
Road Race deild AÍH
 
Fornmerki bifhjóla
 


 
- ruddar.com - allur réttur áskilinn - copyright 2008 - öll afritun af vefnum er bönnuð án leyfis - info(hjá)ruddar.com -