Fréttablaðið, 16. júní. 2007 06:00
Heimild til að gera hjólin upptæk
Annar bifhjólamannanna sem reyndu að stinga lögregluna af aðfaranótt mánudags hefur í tvígang verið sviptur ökuréttindum.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, telur líklegt að bifhjól mannanna sem óku á ofsahraða framhjá stöðvunarmerkjum lögreglunnar aðfararnótt mánudags verði gerð upptæk. Akstrinum lauk með alvarlegu slysi. „Krafan verður gerð en síðan er það dómara að taka afstöðu til hennar," segir Ólafur. Í nýjum umferðarlögum sem tóku gildi í apríl segir að þegar um stórfelldan eða ítrekaðan hraðakstur sé að ræða megi gera ökutæki ökumanns upptækt til ríkissjóðs. „Það er komin mjög skýr heimild frá löggjafanum um að þetta megi gera og eins og málið lítur út í dag virðist sem ákvæði þessarar nýju lagagreinar eigi vel við í þessu tilfelli," segir Ólafur en þessu ákvæði hefur ekki verið beitt áður. Komið hefur í ljós að annar mannanna, sá sem minna slasaðist, var sviptur ökuréttindum í fyrra fyrir að aka á 181 kílómetra hraða og sinna ekki stöðvunarmerkjum. Hann var einnig sviptur ökuréttindum í fjóra mánuði árið 2004 fyrir hraðakstur. Einar Guðmundsson, forstöðumaður Forvarnahúss Sjóvár, tekur í sama streng og Ólafur og segir eðlilegt að beita þessum viðurlögum. „Þarna er sýndur einbeittur brotavilji. Mennirnir virða ekki lögregluna og ætla sér greinilega að keyra svona hratt," segir Einar. Bifhjólamaðurinn sem slasaðist í slysinu liggur enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans. Honum er haldið sofandi í öndunarvél.