31. mar. 2005 00:01
Lögreglumaður greiði skaðabætur
Lögreglumaður, sem stöðvaði bifhjól með því að aka í veg fyrir það á Ægissíðu síðastliðið vor, var dæmdur til að greiða ökumanni bifhjólsins skaðabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Lögreglumaðurinn ók vestur Ægissíðu þegar hann var að leita að mönnum sem höfðu ekið hratt um borgina á bifhjólum en lögreglunni hafði ekki tekist að stöðva för mannanna. Lögreglumaðurinn varð var við eitt bifhjólanna þar sem því var ekið eftir Ægissíðunni og ók hann yfir á rangan vegarhelming í veg fyrir hjólið með þeim afleiðingum að það hafnaði framan á lögreglubifreiðinni sem var þá að hluta til á röngum vegarhelmingi. Ökumaður bifhjólsins kastaðist af því og hlaut nokkur meiðsl af. Í dóminum segir að þegar ákærði hafi ekið í veg fyrir bifhjólið hafi hann gert það í slíkri skyndingu að ökumaður bifhjólsins hafi ekki haft ráðrúm til þess að afstýra slysinu. Ákærði hafi því stefnt ökumanninum í augljósa og verulega hættu. Lögreglumaðurinn var dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur í sekt og ökumanni bifhjólsins 195 þúsund krónur í skaðabætur. Lögreglumaðurinn var einnig dæmdur til að greiða allan sakarkostnað, 150 þúsund krónur. 31. mar. 2005 00:01 Lögreglumaður dæmdur Lögreglumaður hefur verið dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur í sekt og ökumanni bifhjóls 195 þúsund krónur í skaðabætur fyrir að hafa stefnt lífi hans í hættu í lok maí á síðasta ári. Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Lögreglumaðurinn var að leita manna á bifhjólum um nótt í maí. Skammt frá bensínstöð Essó á Ægisíðu ók hann lögreglubíl í veg fyrir bifhjól sem var á leið í austur. Dómurinn telur sannað að lögreglubílnum hafi verið ekið á rangan vegarhelming í þeim tilgangi að stöðva bifhjólið. Vegna þessa ók bifhjólið á lögreglubílinn og ökumaður þess kastaðist af hjólinu og yfir bílinn. Hann slasaðist nokkuð við áreksturinn. Eftir slysið hefur hann verið með verki í handlegg, baki, hálsi og höfði og hefur hann þurft að taka bólgueyðandi lyf við þessum meiðslum og gangast undir sjúkraþjálfun. Um neyðarakstur lögreglubíla gilda sérstakar reglur. Dómurinn telur að lögreglumaðurinn hafi ekki fylgt þeim heldur af stórfelldu gáleysi stefnt ökumanni bifhjólsins í augljósa og verulega hættu.
31. mar. 2005 00:01
Harma dóm yfir lögreglumanni
Landssamband lögreglumanna harmar niðurstöðu dóms í vikunni þar sem lögreglumaður var sakfelldur fyrir að aka í veg fyrir bifhjól sem veitt hafði verið eftirför en við það slasaðist ökumaður hjólsins. Landssambandið sá sig knúið til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri vegna fjölmiðlaumfjöllunar um málið síðustu daga. Segir í fréttatilkynningu að lögreglumaðurinn hafi unnið eftir verklagsreglum sem hingað til hafi tíðkast hjá lögreglunni. Þá segir að lögreglan sé nú í mikilli óvissu um hvernig skuli haga stöðvun ökutækja sem ekki sinni stöðvunarmerkjum og er bent á að ökumaður bifhjólsins hafi verið ákærður fyrir þau brot sem hann er grunaður um að hafa framið kvöldið sem hann var stöðvaður. Á heimsíðu sambandins eru lögreglumenn hvattir til að sýna sérstaka gát við vinnu sína á meðan alger óvissa ríki í þessum efnum.
01. apr. 2005 00:01
Harma dóm yfir lögreglumanni
Landssamband lögreglumanna harmar dóm sem féll í máli lögreglumanns sem sakfelldur var í Héraðsdómi Reykjavíkur nýlega fyrir brot í starfi. Lögreglumaðurinn ók í veg fyrir bifhjól sem hann var að elta með þeim afleiðingum að maður á hjólinu slasaðist nokkuð og taldi héraðsdómur að lögreglumaðurinn hefði ekki fylgt reglum um neyðarakstur heldur af gáleysi stefnt ökumanni bifhjólsins í hættu. Landssambandið telur að lögreglumaðurinn hafi unnið starf sitt í samræmi við það verklag sem tíðkast hefur hjá lögreglunni og tekur fram að vinnuumhverfi lögreglumanna sé oft á tíðum erfitt og algegnt sé að þeir verið að taka ákvarðanir á ögurstundu. Málinu hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar en Landssambandið óttast að sama dómsniðurstaða muni valda lögreglunni óvissu um hvernig eigi að stöðva bifreiðar sem sinna ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.