Mig langar til að vara fólk við að nota Shop USA.
Kostnaður hjá þessu fyrirtæki er algjörlega úr takti við raunveruleikann.
Málið er að ef þú ert að versla þér lítinn og dýran hlut frá USA er reiknað alveg himinhátt "þjónustugjald" hjá Shop USA sem inniheldur sendingarkostnað til Íslands, þjónustugjöld, tolla og allan kostnað.
Tökum smá dæmi:
Mig vantar vélatölvu í bíl frá USA.
Tölvuna get ég verslað hjá 034 Motorsport.
Tölvan kostar í USA 3.350 dollara, með sendingarkostnaði til Íslands (þeir senda um allan heim) þá kostar tölvan 3.450 dollara (miðað við gengið 116).
Ef ég læt þá senda mér þetta beint, þá kemur tölvan í mínar hendur á kr. kr.625.245,- með öllum gjöldum.
Ef ég tek þessa sendingu í gegnum Shop USA, þá fæ ég sendingarkostnaðinn hjá 034 Motorsport á 50$, þannig að tölvan kemst í hendur Shop USA á 3.400 dollara.
Samkvæmt þeirra eigin reiknivél mun þá tölvan kosta í mínar hendur litlar kr. 810.007,-
Þarna liggur munur upp á kr. 184.762,-
Ég veit ekki með ykkur, en mig munar um þessa upphæð.