
Umsóknir í Rudda.
Hafir þú áhuga að ganga í Rudda eru hér nokkur skilyrði.
1. Þú verður að vera virkur hjólari, með full bifhjólaréttindi og með toppstykkið í lagi.
2. Þar sem Ruddar eru "race/grill" klúbbur, er æskilegt að þú eigir racehjól og útigrill, en þó ekki skilyrði þar sem hægt er að "reisa" og grilla á næstum hverju sem er.
3. Til að gerast meðlimur í Ruddum, þarftu að mæta á fund (staður og stund gefið upp í síma eða email) fá þar blað og safna saman undirskriftum allra fullgildra meðlima Rudda.
4. Ruddar hafa tekið þá stefnu að vera virkir í málefnum bifhjólamanna og taka þau skref sem þurfa þykir hverju sinni til að fá málum framgengt.
5. Engin stjórn er í Ruddum, og sjá meðlimir í sameiningu um allar ákvarðanatakanir fyrir klúbbinn.
Vinsamlegast tilgreinið eftirfarandi við umsókn:
Fullt nafn
Heimilisfang
Símanúmer
Kennitölu
Netfang
Tegund hjóls og ástæðu umsóknar, þ.e. af hverju viltu ganga í Rudda?
Og ekki gleyma að senda mynd af þér með umsókninni.
6. Árgjald Rudda er kr. 5.000,- sem er óendurkræft og notast einungis til að niðurgreiða mat, ferðir ofl. sem Ruddar standa að, má þar nefna Landsmót Racefólks, út að borða osfrv.
Athugið að til að sækja um smellið þá
HÉR, sækið umsóknarformið, prentið það út, fyllið það út og skilið til meðlima Rudda eftir að hafa fengið undirskrift allra fullgildra meðlima Rudda. Nánari upplýsingar fást á netfanginu
stjorn@ruddar.com